Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Æfingatímar

Mánudagar og Fimmtudagar.

Mæting 1840 skokk fyrir þá sem vilja.

Bolti byrjar 1900.

(EF einhver kann að gera línubil má hann láta mig vita).

Kiddi


Aðalfundur Arnanna 2007

Var haldinn á Litla Ljóta Andarunganum þann 28 janúar.

Mættir voru: Bergur Gunnarsson Gunnar Örn Egilsson Jón Ingi Einarsson Gunnar G. Hinriksson Kristján Jökull Sigurðsson Vilhjálmur Pétursson Jón Friðrik Jónatansson Sigurður A Sigurðsson Leifur J. Elíasson Sigurður G. Eiríksson Lárus Guðjónsson Kristján Guðjónsson Aron Teitsson Kristinn Sigurðsson Helstu fundarmál:

1. Á fundinum var ákveðið að hafa æfingar á mánudögum og fimmtudögum kl. 1840. Þeir sem vilja, skokka. Hinir, passa völlinn. Spil hefst síðan kl. 1900. Æfingarnar verða til að byrja með á Lindó, þangað til annað kemur í ljós. Planið er að fá tíma á gamla malarvellinum.

2. Lárus Guðjónsson var settur í búninga, bolta og vestamál. Þegar það verður komið á hreint koma peningamálin í ljós. Þá verður e.t.v. stofnaður reikningur og menn borga.

3. Markmiðið er sett á Utandeildina 2007. Áætlaður kostnaður= 100.000kr. Von er á að við fáum styrk. Aðalfundur Utandeildarlið verður um miðja febrúar. Fulltrúar Arnanna munu að sjálfsögðu mæta þar sem Utandeildarmál munu skýrast.

4. Nokkrir æfingaleikir eru í sigtinu. Það mun koma í ljós þegar þar að kemur.

5. Ernirnir.blog.is mun hér eftir verða vettvangur Arnanna. Ef það er eitthvað í gangi. Æfingaleikur, breyttir æfingatímar, er varðar búningamál eða eitthvað. Þá kemur það hérna inn.

6. Kristján Guðjónsson, Leifur Jón Elíasson ásamt undirrrituðum munu reyna að redda spons.

7. En einn aðalpuntkur fundarins var stundvísin. Stundvísin hefur ekki verið til fyrirmyndar hingað til. Ef menn komast ekki eða koma seint, láta þeir vita. Hinir, mæta á réttum tíma. Ef menn koma seint án þess að láta vita mun hópurinn ákveða refsingu.

Semsagt drengir. Fastar æfingar á mánudögum og fimmtudögum kl. 1840. Skokk, fyrir þá sem vilja. Bolti hefst 1900. Lindó, til að byrja með. Mæta stundvíslega. Aðalfundi slitið. Sælir


Ernirnir

Ernirnir
Utandeildarliðið Ernirnir var stofnað 1. júlí 2006. Ernirnir eru knattspyrnulið. Ernirnir eru af Seltjarnarnesi.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband